Velkomin
22.04.2006 17:32:52 / Agnes

NÝ SÍÐA!!

Ég er komin með nýja síðu www.agnesheida.bloggar.is.

Endilega kíkið og kvittið:D

Nessa  8)


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.04.2006 09:37:04 / Agnes

Friday

Góðan daginn allir.

Nú er þessi "fallegi" föstudagur runninn upp (rigningardrulla í Reykjavík).  Helgin er alveg að koma og hún kemur klukkan 14:00 hjá mér, sumum fyrr og sumum seinna.  Helgin hjá mér er alveg fullbókuð og hún sem sagt fer í það að læra vegna fimm prófa og tveggja skýrsluskila í næstu viku.  Ég er komin með grænar bólur út um allan líkama vegna skólans og ég veit ekki alveg hvernig ég á eftir að komast yfir þetta allt en ég mun geta það.  :haha:  I'm the superwoman.  En skýrslan í sálfræði er nú eiginlega alveg tilbúin og við Ingibjörg erum að fara að klára félagsfræðiskýrsluna í dag þannig að þetta verður mest lestur.  Ég er sem sagt að fara í þýskupróf, skriflegt og munnlegt, og skýrsluskil í félagsfræði á mánudaginn, sálfræðipróf og skila skýrslu og ábyggilega vinnubókinni á þriðjudaginn.  Líklegast kynning í félagsfræði á miðvikudaginn eða fimmtudaginn, lokapróf í sögu og landafræðipróf á fimmtudaginn og þá er ég búin gott fólk.  Djöfull hlakka ég til.  Úff.  Þá er bara að bíða og sjá hvort að ég fái að sleppa við lokapróf í sálfræði og landafræði þá þarf ég bara að taka þýskupróf 9. maí og kjellan er komin í sumarfrí.

Talandi um sumarið þá verð ég á Höfn í sumar.  Núna veit ég að allir í Neskaupstað eru grátandi.  En örvæntið ekki.  Ég verð alltaf í þriggja daga helgarfríi aðra hverja helgi og ég ætla að reyna að koma eins oft og ég get.  Ég verð btw að vinna í Olís og vonandi verður það fínt.  Verð yfirleitt alltaf á 12 tíma vöktum og vaktirnar eru frá hálftólf til hálftólf.  Kemur stundum fyrir að ég verði að vinna frá 13 til hálftólf en þetta kemur allt í ljós.  ;)

Ég er orðin dálítið þreytt á þessu blog.central.is.  Það er spurning hvort maður geri eins og allir aðrir og flytji sig yfir á bloggar.is.  Hvað segið þið?

Ein segjum þetta gott.

Endilega kvitta fyrir komuna.

Nessa 8)


» 4 hafa sagt sína skoðun

18.04.2006 11:28:06 / Agnes

Title

Þá er komið að því sem allir hafa beðið eftir.  Blogg frá Agnesi.  :)

Páskafríið byrjaði 7. apríl og í dag er 18. apríl og skólinn byrjar aftur á morgun.  :(  Glatað dæmi maður.  Ég var núna að koma úr flugi frá Neskaupstað og er nú komin aftur í litlu, sætu íbúðina okkar Hödda.  Ég hefði nú alveg viljað vera miklu lengur í Neskaupstað.  Þetta er bara svo æðislegur bær.  ;) 

Mikið var gert í páskafríinu eins og t.d. að fara í tvær fermingaveislur, fara með Hafrúnu í búðir og bíó (Ice Age 2 er algjör snilld), fá mat hjá foreldrunum, keyra heim til Neskaupstaðar á beinskiptum, já Elvar var að kaupa sér bíl, helvíti nettur kallinn, læra, læra, læra, læra og fara á skíði, fara á skíði, fara á skíði, fara á skíði og fara á skíði.  Djöfull var bærilegt að komast á skíðin aftur.  Ég verð nú að viðurkenna að ég var byrjuð að ryðga en þetta kom allt saman og þegar ég fór á skíði í gær þá leit ég út eins og atvinnumaður.  :haha:  Svo var auðvitað bara haft það kósí heima og ég ákvað að baila á öllu skemmtanalífi fyrir austan.  ;)  Og auðvitað var borðað páskaegg, en ég er ekki nærrum því búin með mitt sem er met því ég borða alltaf allt páskaeggið og nammið á páskadag nema fótinn og á fótinn eftir á annan í páskum en núna á ég meira en hált páskaeggið eftir.  :o  Þannig ég verð bara að borða það í dag á meðan ég er að læra.  Ég verð nú bara að segja að þegar ég fór á skíði með Svönu þá áttum við skíðasvæðið sko, við vorum það mikið að meika það.  ;)

En meira hef ég ekki að segja en ég vil koma með smá pælingu frá mér (eins og þið vitið þá er þær alltaf sérstakar en samt spennandi):

Ég var að spá í einu.  Hvað er málið með þetta “Sææææælaaar”?  Þú veist strákar eru að segja “Sæææælaaar” við aðra stráka.  Síðast þegar ég vissi þá var þetta orð yfir það að heilsa stúlkum í fleirtölu.  Jæja, kannski er ég bara svona gamaldags.  Mér finnst bara dálítið sorglegt ef að gaurar eru að fara líkja sér aðeins og mikið við hann Gillz sem við öll elskum og dáum *hóst hóst*.  Ekki misskilja mig.  Ég hef ekkert á móti Gillz, hann má lyfta eins miklu í bekk og hann getur og farið eins mikið í ljós og strípur og vax og hann getur og spókað sig í sjónvarpinu og skrifað margar biblíur um það hvernig fólk á að vera o.s.frv.  Ég er bara svona gamaldags greinilega.  Ég bara fíla ekki stráka sem eru eitthvað að breytast í einhverjar kellingar sem þola ekki smá skít.  Samt líta svona gaurar eins og Gillz eins og kúkar því þeir eru búnir að nauðga ljósabekkjunum svo mikið að þeir eru orðnir eins og kúkur á litinn.  Djííí maður.  Svo eru þeir byrjaðir að segja “sæææælaaaar” við hvorn annan eins og þeir séu að tala við stúlkukindur í fleirtölu.  Já, þá er þetta komið frá og þetta  blogg er ekki gert til þess að móðga einn né neinn.  Ég er bara segja mína skoðun og þetta er víst frjálst land (eða svona næstum).

Takk fyrir mig.

Nessa 8)


» 5 hafa sagt sína skoðun

16.04.2006 20:08:19 / Agnes

Páskar

Gleðilega páska!!  :)

P.s.   Páskaþeminn í tilefni páskanna.  Þetta er sko flottasta útlitið að mínu mati.  Hvað finnst þér?

 

Nessa.   8)


» 1 hafa sagt sína skoðun

03.04.2006 19:01:08 / Agnes

Helgin

Góða kvöldið kæru landsmenn.

Hvað segið nú á þessum frábæra mánudegi?  Mánudagar eru alltaf æðislegastir.  Kaldhæðni dauðans hérna.  Já, ég ætlaði bara að tjá mig aðeins um helgina því ég hef ekkert betra að gera og ef þið viljið vita hvað ég gerði spennandi um helgina þá bara gjöriði svo vel og lesið.  ;)

Föstudagur:   Þegar Höddi var búinn í vinnunni þá hringdi hann og spurði hvort ég vildi ekki grilla með þeim Gutta og Begga.  Ég var náttúrulega til í það því grillmatur er bara hreinlega það besta.  :)  Frábær matur sem gæjarnir grilluðu, en ég átti heiðurinn af salatinu eins og venjulega.  Við vorum bara eitthvað hjá Gutta um kvöldið og við horfðum á Idolið og þetta er í fyrsta skipti sem ég sé eitthvað af þessu Idoli nema þegar ég sé stundum Idol Extra á Sirkus.  Mér fannst krakkarnir sem voru eftir bara nokkuð nett sko.  En svo datt þarna ljóskan út þannig að barnið og þriggja barna faðirinn verða að keppa á úrslitakvöldinu.  Eftir heimsóknina hjá Gutta þá bara leifðum við okkur DVD og fórum bara ágætlega snemma í háttinn, miðað við að það var helgi.

Laugardagur:   Við áttum bæði eitthvað bágt með að sofa út því sólin kemur svo snemma upp og íbúðin verður þá svo björt.  Ógeðslega pirrandi.  Höddi sem sagt vaknaði eitthvað um hálfátta og ég eitthvað rétt rúmlega átta og við vorum bara að rembast við að sofna og það tókst á endanum og gátum sofið til næstum því 12.  Þá fór Höddi bara eitthvað að snúast fyrir marga og ég fór í ljós og í göngu.  Hörkugöngu í brjáluðum vindi og það tók nú bara verulega á og ég var bara nokkuð sátt með það.  :)  Svo fór maður bara að gera sig ready fyrir kvöldið og fór í smá partý til Hákonar og var þar einhverja smástund en Höddi fór eitthvað til Gutta og Begga í brjálað partý, svo lá leið mín á Players á austfirðingadjamm og ég fór með Bergrósu, Önnu Hlíf, Borghildi og Möttu.  Svo kom Höddi stuttu á eftir mér og skemmtum við okkur bara súper vel.  Bara æðislega gaman.  Samt ekki mikið af Norðfirðingum.

Sunnudagur:   Vöknuðum fyrir hádegi.  Og fórum bara að gera okkur ready fyrir fermingarveisluna.  Skunduðum svo í Hafnarfjörðinn til Olgu og fórum með Tóta og Olgu í Sandgerði þar sem veislan var haldin.  Og hún var bara mjög fín.  Góðar kökur og læti.  ;)  Vorum svo komin heim um kvöldmat og áttum bara góða kvöldstund heima saman.

Í dag byrjaði svo ný vika.  Fór í skólann og ljós og aðeins í Kringluna og plokkun og litun og fór svo aftur í skólann og hér er ég komin.  :)  Ætla bara að hangsa eitthvað með Hödda mínum í kvöld.  Kallinn er að fara til Svíðþjóðar á sunnudaginn og verður alveg í 10 daga þannig að maður ætlar að reyna að eyða eins miklum tíma og maður getur með kallinum áður en hann fer.  :P

Páskafríið byrjar á föstudaginn.  :haha::haha::haha::haha:

Nessa 8)


» 8 hafa sagt sína skoðun

31.03.2006 17:01:33 / Agnes

Blogg

Góðan daginn lömbin mín.  Það er barasta held ég kominn tími á eitt stykki blogg.  Þó að ég hafi nú ekkert mikið í fréttum.  Hmm, let me think.  Já, sem sagt við gerðum ekkert merkilegt þetta laugardagskvöld þar sem að ég skildi við ykkur síðast.  Fórum bara aðeins á rúntinn. 

Sunnudagurinn fór í lestur þar sem ég var að fara í tvö próf í vikunni og mér gekk bara ágætleg í þeim og að elda lambakjöt handa Óskari bróður sem kom í mat á sunnudagskvöldið.

Á mánudaginn þá vaknaði maður ógeðslega þreyttur og bölvaði yfir nýrri viku.  Þessi dagur fór bara í lærdóm og ekkert annað.  Hreinlega ekkert annað.  

Á þriðjudaginn var ég búin snemma í skólanum þannig ég slappaði bara af heima og horfði á Harry Potter and the Goblet of Fire.  Jú, jú, Harry Potter aðdáandinn og nördinn skellti sér á DVD myndina um helgina og þetta er meira að segja special edition.  Ég veit samt ekkert hvað það á að vera betra.  Myndin er allavega nákvæmlega eins og þegar ég sá hana í bíó, eða það held ég. 

En á miðvikudaginn þá gerði ég nú eitthvað skemmtilegt.  Ég sem sagt fór bara í skólann og ræktina, bara þetta usual.  En um kvöldið þá var söngvarakeppni Borgó (oj, ég hata þetta orð, söngvarakeppni, það er eitthvað svo ljótt, ég vill frekar hafa þetta söngvakeppni) og ég, Ingibjörg og Sigrún skelltum okkur og það var slatti af lögum að keppa en haldiði ekki bara að Sindri Eldon Bjarkarson (sonur Bjarkar Guðmundsdóttur) hafi komið og sigrað þessa keppni með frumsömdu lagi sem var bara helvíti nett.  Það kallast Laugarnesvegur 100 og það heitir það vegna þess að stelpan sem Sindri var eða er skotinn í á heima þarna.  ;)  Haha, hann er svo ruglaður.  En ég meina hann var ekkert með besta sönginn en hann var með langskemmtilegasta showið.  Allir skemmtu sér konunglega yfir honum og hann var alveg með frábæra takta.  ;) 

Í gær var maður bara að drepast í skólanum, hata fimmtudaga, þá er ég í skólanum allan daginn nonstop + World Class.  Úff.  En eftir það þá ákváðum við Ingibjörg að skella okkur á Stylinn því okkur leiddist báðum því kallarnir voru báðir að vinna.  Svo rúntuðum við bara eitthvað smá og ákváðum síðan að fara heim og horfa á Harry Potter.  Ég ætla bara að taka það fram að ég hafði ekki horft á myndina alla, ég sofnaði alltaf yfir henni og var að læra líka yfir henni.  Svo að fólk haldi ekki að eigi mér ekkert líf og geri ekkert annað en að horfa á Harry Potter.  En ég er líka svona manneskja sem get horft á myndir aftur og aftur og aftur og lesið bækur og tímarit aftur og aftur og aftur.  Óskar bróðir segir að það sé eitt af einkennum einhverfu þannig að ég spyr ykkur.  Finnst ykkur ég vera einhverf?  Svara í skoðanir takk.  ;)  Ég er bara forvitin sko.  

Í dag var bara skóli og rækt og síðan fórum við Ingibjörg í Smáralindina að pakka inn gjöfunum fyrir ferminguna sem ég er að fara í á sunnudaginn og fórum svo á kaffihús og svona.  :haha:  Kvöldið í kvöld er óákveðið en það á að vera eitthvað svaka partý hjá hinum mikla Miðbæjarprins annað kvöld og ekki lætur maður það framhjá sér fara.  :D 

Jesús, hvað þetta er boooooring blogg maður.  Jæja, whatever.

Nessan (sem elskar Harry Potter út af lífinu) 8)


» 6 hafa sagt sína skoðun

25.03.2006 23:08:57 / Agnes

Langt blogg

Hvernig væri að blogga?  Já, það er sem sagt laugardagskvöld og klukkan er 22:41. Ég var að koma úr bíói, nánar tiltekið var ég að koma af Big Mama’s House 2. Snilldar mynd verð ég að segja.  Big Mama klikkar sko ekki.  :haha:  Núna er ég bara að bíða eftir mínum heittelskaða.  Hann skrapp aðeins til að hitta einn mann og eftir það ætlum við að reyna að gera eitthvað skemmtilegt saman og ég drep tímann með því að blogga fyrir ykkur mínu kæru aðdáendur sem að eru þarna úti.  Einhvern veginn hef ég það samt á tilfinningunni að kvöldið fari í það að spurja hvort annað þessarar vinsælu setningar þegar maður hefur ekkert að gera: “Hvað eigum við að gera?”.  Hún er farin að fara dálítið í taugarnar á mér.  En svona er lífið.  Hmm.  Fyrst ég hef ekkert að gera akkúrat í augnablikinu þá ætla ég bara að segja ykkur hvað hefur á daga mína drifið síðan síðasta blogg var ritað hér.

Já, sem sagt á þriðjudaginn eftir sálfræðitímann fræga og hádegið þá var haldið í LAN 103 það er ekki frásögu færandi nema það að Óttar (landafræðikennarinn) segir að hann bara neyðist til að fresta prófinu fram á næsta þriðjudag.  Já, þið giskuðuð á rétt.  Þetta er prófið sem ég er búin að vera hugsa um síðan fyrir tveim vikum og hann frestar því.  Það er svo sem allt í lagi og ég ákvað þá bara að taka því rólega þegar ég kom heim og hjúkra mínum heittelskaða sem lá fárveikur upp í rúmi.  Greyið kallinn.  Já, hann sem sagt fékk veikina mína og henni var ekkert fagnað neitt sérstaklega vel.  Og er kallinn búinn að liggja síðan á þriðjudaginn en í dag var fyrsti dagurinn sem hann fór út.  Þannig hann er allur að koma til.  Já, sem sagt á morgun og á mánudaginn þá mun ég sitja sveitt yfir landafræðinu og líka þýsku á morgun því að það er þýskupróf á mánudaginn.  Iss, þessir kennarar geta bara ekki hætt að hafa þessi fjandans próf.  Maður er alveg kominn með upp í kok af þessu rugli.  Jæja, ekki þýðir að kvarta maður fær ekkert út úr því.  Það er nú alveg víst.

Miðvikudagskvöldið þá fór ég með henni Ingibjörgu minni í Fjölbrautaskólann í Ármúla og fylgdumst með Heita Pottinum.  Já, þetta er svona eins og Djúpa Laugin.  Í Heita Pottinum var sem sagt stelpa úr Borgó og þrír strákar úr Ármúlanum.  Og strákur nr. 2 varð fyrir valinu.  Bara ef þið vilduð vita það.

Fimmtudagskvöldið fórum við aftur tvær á Fiskislóð 45 til þess að fylgjast með Gettu Betur og ég fór í salinn í þeirri von að komast í sjónvarpið og verða fræg.  Sú ósk rættist ekki.  Og ekki fór sú keppni vel því við töpuðum fyrir Verzlingum.  Það var nú dálítið sárt.  En maður jafnar sig.  Fyrst fann maður fyrir sorg, síðan þvílíku hatri á Verzlingum og síðan jafnar maður sig þó að hatrið verði alltaf til staðar.  ;)  Marta mín ég hata þig samt ekki.  ;)  Hehe.  En mér fannst okkar lið bara standa sig vel miðað við það að þetta er alveg óreynt lið og bara flott að komast í fjögurra liða úrslit í fyrstu tilraun.  Mér fannst samt dálítið leiðinlegt í endann þegar spyrillinn (man ekki hvað hann heitir) leyfði ekki Borgó að svara sérstaklega þegar þau áttu ekki neinn möguleika á að jafna.  Það er nú betra að tapa 25-21 en 25-18.  Ekki satt?  ;)  En þetta kemur bara næst eins og maður segir alltaf.  :)

Á föstudaginn þá hjúkraði ég bara Hödda mínum eftir skóla (ég veit ég er svo góð). Svo byrjaði hann að hressast seinni partinn þannig við ákváðum að taka íbúðina í gegn og ég hreinsaði baðherbergið og klósettið svo vel að ég vildi helst að við myndum ekki fara inní það hvað þá gera þarfir okkar í klósettið.  Þannig ég bað Hödda að ef hann þyrfti að gera nr. 2 að hann ætti þá að skjótast í næstu sjoppu eða fara bara heim til vinar síns eða eitthvað annað.  ;)  Hehe, góð maður.  Um kvöldið þá bara leigðum við okkur mynd og vorum bara góðu börnin heima.  Það er nú meira hvað maður er orðinn gamall.  En það þýðir ekki að vera alltaf á djamminu þegar maður er fátækur námsmaður og er ekki á Hótel Pabbi og Mamma (ég veit ég valdi þetta en whatever).  Svo er bara ekkert töff að djamma hérna í Reykjavík.  Mér finnst miðbærinn alltaf eitthvað svo ógeðslegur um helgar.  Fullt af fullu fólki og maður er ekki neins staðar öruggur.  Frekar vel ég sveitaböllin heima í sveitinni.  Eða þá bara eitthvað partý.  ;)  Já, þannig er ég bara.  Og er stolt af því, thank you very nice.  :haha:

Í dag fórum við í verslunarleiðangur fyrir múttu og verlsuðum fermingargjafir. Jú, jú, nú fara þær allar að skella á og ég held að okkur sér boðið í fjórar fermingar.  Eða tæknilega fimm því í einni fermingunni eru það tvíburar.  ;)  Ekki er langt í páskafríið eða rétt tæpar tvær vikur, eða 10 skóladagar.  Og verður það voðalega gott þegar að því kemur.  Á meðan heldur maður manni bara upptekinni þá líður tíminn miklu hraðar.  :)

En eins og ég segi, það sem eftir er af kvöldinu er óráðið.  Og ætla ég að kveðja núna.  Mér er alveg sama að þetta sé langt blogg.  Það er ykkar val að lesa þetta og vil ég þakka þeim fyrir sem lesa þetta.  Það eru sko alvöru vinir.  Svo vil ég fá nokkrar skoðanir á þetta.  Takk fyrir.

Nessa 8)


» 9 hafa sagt sína skoðun

21.03.2006 13:12:21 / Agnes

Sálfræðitíminn.

Haha, ég er í hádegishléi núna og ég bara verð að segja ykkur frá sálfræðitímanum sem ég var í.  Hann var alveg frábær.  Það var eins og kennarinn væri á einhverju, ég er ekki að grínast, hann var hoppandi og dansandi út um alla stofu með vatnsglas í höndinni og lét bara eins og lítill krakki sem væri að fá jólapakkana sína.  Haha, þetta var ekkert smá fyndið!!  Núna erum við að læra um fóstur og eitthvað svoleiðis þannig að Aron lét okkur horfa á mynd um fæðingu.  Sem sagt allt ferlið.  Þá meina ég ALLT.  Alveg frá getnaði til fæðingar.  Shit, og hvað það var fyndið að sjá svipina á krökkunum og mér líka þegar konan var að eignast barnið.  Haha, shit sko, þetta var vibbi sko!!  Ég skil ekki af hverju konur láta sína fæðinguna í sjónvarpinu.  Þetta er eins og með þáttinn Fyrstu skrefin.  Ég var bara flakkandi á milli alla minna þriggja stöðva sem ég hef í sjónvarpinu og lenti akkúrat á þessum þætti þar sem kona var bara eignast barn!!  Dísus kræst, ég fékk bara fyrir hjartað sko.  Svo endaði tíminn á því að við fengum einkunnir úr rökfærsluritgerðinni okkar til baka og það voru allir geðveikt óánægðir með einkunnirnar nema ég var nokkuð sátt, fékk 8, og því voru allir (þegar ég segi allir þá meina ég þá sem láta einkunnir skipta sig einhverju máli) að rífast við Aron um að hann hafi ekki gefið okkur nægar upplýsingar og eitthvað kjaftæði sko og það var bara allt í háalofti í þessum tíma.  Hehehe, góður tími.  Reddar deginum gjörsamega.  ;)

Agnes Heiða8)


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.03.2006 21:52:43 / Agnes

Mánudagur.

Ég var búin að vera svo langan tíma bara liggjandi upp í rúmi að gera ekki neitt í síðustu viku að það lá við að ég hlakkaði til að mæta í skólann í morgun.  En eftir einn skóladag aftur þá er ég bara komin með ógeð.  Dísus kræst.  Mér finnst að skóli ætti að vera þannig að maður fer einn dag í skólann og síðan frí í sjö daga.  Hver styður það?  ;)  Ég er samt sem betur fer ekki búin að missa mikið úr skólanum.  Það er bara próf í landafræði á fimmtudaginn en ég er búin að vita af því síðan skólinn byrjaði eftir jólafrí og þið eruð líka búin að vita af því í þónokkurn tíma því ég tala ekki um annað.  Iss, ég verð að fara finna annað umræðuefni.  En já, þetta landapróf er á fimmtudaginn og það er náttúrulega fáránlega mikið að lesa fyrir það eins og síðustu tvö landafræðipróf.  Ég bara vona að ég standi mig betur en síðast og vonandi jafnvel og þar síðast.  Sama dag núna á fimmtudaginn er viðureign Borgó og Verzló í Gettu Betur og ætla ég og Ingibjörg að sýna okkur þar og hvetja okkar lið til sigurs.  Hef samt ekki mikla trú á að við vinnum.  En whatever, gaman að fara og horfa á þetta live en ekki úr sjónvarpinu.

Helgin var mjög róleg.  Langt síðan ég hef upplifað svona helgi.  Leigðum bara dvd á föstudaginn og svo lærði ég bara á laugardaginn og gerði ekki neitt um kvöldið.  Svo á sunnudeginum var bara ennþá haldið áfram að læra og læra og læra.  Ég var nú spurð á msn í gær hvort að ég geri ekkert hérna í Reykjavík nema læra.  Haha, meirihlutinn af gjörningum mínum hérna í borginni fara í lærdóm.  En maður kíkir stundum út og hittir fólk af holdi og blóði.  ;)

Í dag er ég búin að vera í skólanum.  :o  Ha?  Agnes í skólanum?  :o  Það er langt síðan það gerðist.  Og svo lærði ég.  Ha?  Læra?  Og svo bakaði ég pizzu handa Hödda og Dóra og auðvitað sjálfri mér og þó ég segi sjálf frá þá var þetta helvíti nett pizza.  :D 

Páskafríið hefst eftir 2 vikur og 4 daga.  :haha:

 

 

 

Agnes Heiða.   8)


» 1 hafa sagt sína skoðun

17.03.2006 17:29:49 / Agnes

Loksins.

Loksins, loksins er ég eitthvað að koma saman.  Er búin að vera veik síðan á sunnudaginn:!:  Ég meina það sko.  Ég kenni loftinu hérna í Reykjavík um, ónæmiskerfið mitt bara þolir ekki loftið hérna og það er bara staðreynd sko.  Er eiginlega búin að vera með kvef síðan ég kom hingað í haust og svo síðasta sunnudag þá ákvað líkaminn minn að hann þyldi þetta ekki lengur og slökkti bara gjörsamlega á mér.  Ég er nú samt ekki búin að liggja hérna aðgerðarlaus þannig séð þó að ég sé orðin biluð að hafa ekki farið út í laaaaangaaan tíma.  Ég hef t.d. gert öll verkefnin í sögu sem ég átti að skila í dag og Ingibjörg var svo rosalega góð að skila þeim fyrir mig, takk fyrir það Ingibjörg mín.  :P  Svo er ég búin að reyna að bögglast að lesa í landafræði.  Næsta próf er á fimmtudaginn og ég ætla að reyna að fá hátt í því til að bæta upp síðasta próf.  Verð allavega að fá 7,5 en ég stefni á hærra.  Svo er ég búin að vera að skemmta mér við að horfa á Simpsons og kvikmyndir einnig, horfði t.d. á Into the Blue, öss engir smá miklir súkkulaðistrákar í þessari mynd og Jessica Alba er ógeðslega flott mar:!:  Eða það finnst öllum strákum.  ;)

Helgin verður bara róleg hjá minni og ætla ég að jafna mig alveg.  Ætla bara læra í landafræði og svoleiðis skemmtilegheit.  Gvöð, hvað ég hlakka til. Eða þannig.

Ég hef svo sem ekkert að segja nema að Elvar litli bróðir minn á afmæli dag, kallinn er orðinn 17 ára gamall og vil ég bara óska honum innilega til hamingju með það og ég mæli með því að þið forðið ykkur af götunum.  Nei, haha, gamall þessi.  Elvar er sko með góða ökuhæfni í blóðinu eins og allir í fjölskyldunni minni.  :haha:

Agnes Heiða.  8)

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.03.2006 13:08:05 / Agnes

VÚHÚ!!

Vildi bara monta mig á að Elli litli brósi er kominn með bílpróf:!::D  Og hann náði því með stæl.  :D:D

 

Til hamingju með bílprófið litli brósi!!   :D :D :D :D

 

Btw, ég er ennþá veik.  :(

 

Minni á bloggið fyrir neðan.

 

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.03.2006 12:09:23 / Agnes

Veik.

Að vera veik = Ömurlegast í heimi:!:  Djöfull hata ég það.  Okei, mér leið mjög vel alla vikuna og fann ekki fyrir vott af veikindum,  Mér leið mjög vel á föstudaginn og laugardaginn en á aðfaranótt sunnudagsins þá var ég byrjuð að finna fyrir smá höfuðverk og átti erfitt með að sofna en ég hélt að þetta væri bara sem mundi fara bara eftir smá tíma.  Ég vaknaði svo á sunnudagsmorgun rétt fyrir klukkan 10 því það er svo bjart í íbúðinni okkar að maður getur bara ekki sofið, en þegar ég vaknaði þá leið mér bara þokkalega.  Og ég keyri Hödda í vinnuna í hádeginu og allt í lagi.  Heyrðu, kem ég ekki heim og var svo slöpp að ég bara gat ekki hreyft mig.  Átti erfitt með að standa og rétt svo komst í sturtu.  Ég var með svo mikinn hita, höfuðverk og beinverki að ég var bara að deyja.  Oj, hvað þetta er ógeðslegt:!:  Ég sagði mömmu frá þessu og hún er búin að banna mér  að fara útúr húsi og stranglega bannaði mér að fara í skólann í dag.  Ég tók sem sagt eina verkjatöflu í gærdag og mér leið miklu betur við hana og hélt að ég væri bara orðin albata og sagði mömmu það en hún sagði að ég væri sko ekki orðin albata og ætti bara að halda mér rólegri.  Og auðvitað hlýðir maður mömmu sinni.  Þannig ég tók tvær verkjatöflur áður en ég fór að sofa en átti samt erfitt með svefn því mér var svo heitt:!:  Fokk sko.  Svo var ég svo slöpp þegar ég vaknaði í morgun og var því bara heima.  Sleppti bara þessum skóla.  Kennararnir eiga eftir að fá hjartaáfall því ég hef mætt í hvern tíma.  ;)  Hehe, ég er svo mikið góða stelpan.  ;)

Já, sem sagt dagurinn í dag fer í það að liggja upp í rúmi með tölvuna og með sjónvarpið fyrir framan mig og lesa líka fyrir sálfræðiprófið sem er á morgun.  En gat ekki verið á föstudaginn.  :^)  Ef að þetta sálfræðipróf hefði verið á föstudaginn þá hefði ég bara getað legið upp í rúmi með tölvuna og sjónvarpið fyrir framan mig, ég hefði ekkert þurft að lesa fyrir sálfræðipróf líka.  Ohh, svekkjandi.  :(

Páskafríið byrjar eftir 3 vikur og 4 daga:haha:  Gvöð, hvað ég hlakka til.  Þá koma mamma og pabbi í bæinn og auðvitað Lilli til þess að fara í fermingar og svo verða þau hérna í nokkra daga og svo keyri ég með þeim heim og verð heima um páskana.  :D

Nessa 8)


» 7 hafa sagt sína skoðun

11.03.2006 15:05:29 / Agnes

Laugardagur :)

Ég tek það allt til baka þegar ég sagði að það væri miklu minna að gera í skólanum eftir áramót.  Það er bara ekki satt.  Síðustu vikur eru bara búnar að vera brjálaðar í verkefnaskilum og prófum.  Í vikunni sem var að líða þá var ég að læra til rúmlega miðnættis á þriðjudaginn, miðvikudaginn og fimmtudaginn því ég var að fara í félagsfræðipróf á fimmtudaginn síðasta (gekk ágætlega held ég) og sálfræðipróf á föstudaginn og þar af leiðandi átti ég að skila verkefnibókinni minni í sálfræði en kennarinn lætur okkur aldrei gera neitt í þessari bók í tímum að maður gleymir að gera í henni heima.  Þannig að ég átti helling eftir að gera í henni en ég náði þó að gera hana og lesa fyrir prófið fyrir föstudaginn en kennarinn var búinn að vera veikur alla vikuna og ég var sem sagt ekkert búin að fara í sálfræði í vikunni en svo mætir kennarinn á föstudaginn og ég var alveg tilbúin að taka prófið og skila verkefnabókinni en nei þá spyr hann: "Hver er tilbúin að taka prófið í dag?"  Og ég var ein sem rétti upp hönd því það var enginn annar tilbúinn þannig hann fresti prófinu fram þá þriðjudag.  Ohh, þetta er svo ógeðslega svekkjandi en já ég verð reyndar bara betur undirbúin en samt:!:  Óþolandi þegar svona gerist.  Þannig ég á bara eftir að hugsa um sálfræði þangað til á þriðjudaginn.  :^)  Svo á föstudaginn næsta á ég að skila fjórum verkefnum í sögu.  Siggi saga alveg að missa sig hérna í verkefnaskilunum.  Úff.  Svo er landafræðipróf ekki í næstu viku heldur þarnæstu.  Og það þarf að lesa fyrir það svona u.þb. 200 bls.  Óþolandi sko.  Hvernig verður þetta þegar maður er kominn í háskóla spyr ég bara?  Æ, maður á víst bara að hugsa um eitt í einu þannig ég hugsa bara um að klára menntaskólann núna.  ;)

Vegna mikils lærdóms þá hef ég ekki verið mikið í því að vera skemmta mér eitthvað í síðustu viku.  En það var loksins hið langþráða fænkukvöld hjá okkur þremur frænkunum, mér, Mörtu og Hugrúnu.  :D  Mér fannst það bara alveg frábært.  Við byrjuðum á því að fara á American Style (bestu hamborgarnir þar og hjá pabba mínum).  ;)  Svo fórum við bara eitthvað smá á rúntinn til að ákveða hvað við ættum að gera meira og okkur datt í hug keila, bíó, spóla, spila, kaffihús og bara endalausar hugmyndir.  Við ætluðum í bíó, á myndina Rent, en hún er sýnd svo seint (eða við misstum af 8 bíói) og Hugrún var að fara vinna eldsnemma í fyrramálið þannig við ákváðum að leigja spólu og horfa á hana hérna heima.  Þannig við fórum í Nóatún og keyptum okkur nammi og fórum svo og leigðum okkur Skeleton Key á endanum (það tók okkur laaaaangaaaan tíma að finna okkur mynd, hefðum getað verið þarna allt kvöldið).  Þessi mynd var bara helvíti góð og við sátum allar gjörsamlega spenntar og skíthræddar saman í einni klessu.  ;)  Ógeðslega gaman hjá okkur.  Svo kláraðist myndin og þær bjuggu sig til brottfarar en þá hringdi Höddi og sagði að það væri komin bjráluð hálka og að við ættum að bíða eftir honum, að hann mundi keyra þeim heim.  Heyrðu litum við ekki út og það var allt orðið hvítt.  Þegar við fórum inn þá var ekki einu sinni snjókoma.  Það var bara smá rigning.  Dísus, okkur brá ekkert smá.  Hehe.  ;)  Það er nú spáð rigningu næstu daga þannig ég vona að þessi snjór fari bara á stuttum tíma.  :)

Kvöldið í kvöld er óákveðið.  Kannski maður hitti Örnu og Gumma og geri eitthvað skemmtilegt með þeim.  :)  Eða maður verði bara með rómantíska kvöldstund með mínum heittelskaða.  ;)  Þ.e.a.s. að hann verði ekki að vinna í þessum vibba bíl sem að hann er að gera upp.  Ég er orðin nett pirruð á þessum bíl sko.  :evil:

En jæja.  Segjum þetta gott.  One Tree Hill er að byrja og ég missti af því í gærkveldi.  Ég veit, ég veit, ég er eins og gelgjurnar en so what?  ;)  Ég dýrka One Tree Hill og O.C.  :D 

Nessa 8)


» 4 hafa sagt sína skoðun

07.03.2006 13:32:08 / Agnes

Úff..

Já góðan daginn gott fólk.  Held að það sé bara kominn tími á eitt stykki blogg.  En hvar á ég að byrja?  Jú, ég byrja bara á þemadögunum.  Þeir byrjuðu þannig að Ingibjörg náði í mig rétt eftir klukkan átta og við skunduðum í Þjóðleikshúsið og mér fannst bara mjög áhugavert að skoða það.  Mjög mikið af tröppum samt og það er mjög auðvelt að villast þar.  En skoðunin þar tók nú bara klukkutíma þannig að við fórum svo í Smáralindina á kaffihús og við fengum okkur rúnstykki (eða ég) og heitt kakó.  :D  Já, þennan sama dag var Öskudagurinn og náttúrulega fullt af börnum í Smáralindinni að syngja og það voru svo margar Sylvíur að maður var orðinn ruglaður og þær sungu allar (of course) Til hamingju Ísland.  Við heyrðum meira að segja í tveimur sem rödduðu þetta og alles.  ;)  Eftir það þá fundum við draumaskónna sem pössuðu akkúrat á mig og þetta var síðasta parið:!::!:  Pælið í heppni, ég verð aldrei heppin.  Svo drápum við tímann einhvern veginn með því að rúnta og eitthvað því við áttum ekki að mæta á Þjóðminjasafnið fyrr en kl. 13:00.  En mér fannst mjög áhugavert að skoða það og það tók okkur einn og hálfan tíma að skoða það, þetta var eitthvað svo spennandi og fróðlegt.  :)  Eftir það skelltum við okkur í ljós.  :D

Á fimmtudeginum fórum við svo í dans klukkan níu og fokk hvað það var gaman:!:  Geðveikt púl í tvo klukkutíma.  Og ég fékk geðveikislegar brjálæðislegar harðsperrur eftir það og labbaði um eins og eldgömul kelling um helgina.  ;)  Um daginn fórum við svo aftur í ljós og ég er orðin andskoti frískleg.  ;) Um kvöldið var svo Glæsiballið og það heppnaðist ekkert svakalega vel.  Var ágætt á köfulm.  En skemmtiatriðin voru alltof langdregin og ballið var ekkert skemmtilegt.  Fórum bara heim snemma.  ;)

Yes, á föstudaginn var frí og ég var bara í chillinu.  Svaf út og hafði það bara ofurgott.  Um kvöldið fórum við Höddi svo út að borða á Grillhúsið og fengum bara rosagóðan mat.  :)

Á laugardaginn lærði ég bara og hékk heima hjá mér.  Um kvöldið var svo farið í afmæli til Micro og það var bara ótrúlega skemmtilegt.  Hitti alla aftur eins og Gumma og Gumma og Örnu og Guðrúnu og Svan og Birgittu og við skemmtum okkur bara öll vel saman.  :)  Við slepptum því samt að fara á Wig Wam.  Það voru allir bara orðnir þreyttir og svona þannig við fórum snemma heim.

Sunnudagurinn fór svo í leti.  ;)

Á föstudaginn er Birgitta svo að fara að keppa í Ungfrú Suðurland og vonandi á henni eftir að ganga vel.  Væri alveg til í að fara að fylgjast með henni sko.  ;)  En hún kom í Séð og heyrt.  :D  Haha, eins og það skipti einhverju.  ;)

En vá langt blogg.

Nessa 8)


» 7 hafa sagt sína skoðun

28.02.2006 21:06:27 / Agnes

Sweet!!

Jess, ég er tæknilega séð komin í helgarfrí vegna þess að það eru þemadagar á morgun og á fimmtudaginn og svo Glæsiballið á fimmtudagskvöldið sem verður geggjað:!::!:  :D:D  Ég er sem sagt að fara í heimsókn í Þjóðleikshúsið á morgun kl. 09:00 og kl. 13:00 fer ég í Þjóðminjasafnið og svo á fimmtudaginn fer ég í dans kl. 09:00, haha sjáiði mig ekki fyrir ykkur í einhverjum töff hiphop dansi eða sjóðheitu freestyle?  ;) Svo fer restin af fimmtudeginum í að undirbúa sig fyrir aðalatburð ársins.  :P  Jiii, hvað ég hlakka til.  Ingibjörg verður með mér í þessu öllu á þemadögunum og ég vitna bara í hana af hennar síðu og segi að þetta verður skemmtun í öðru veldi.  :haha:  Svo er frí á föstudaginn.  Sweet:!:

Ég sagði ykkur í síðasta bloggi að ég væri búin að fá vinnu.  Ég veit ekki alveg hvernig það er því ég er ekkert búin að heyra frá fólkinu sem á þessa sólbaðsstofu síðan á fimmtudaginn, þannig ég sendi þeim e-mail í gærkvöldi og spurði þau hvernig málin væru og þau afsökuðu sig bara eitthvað og sögðust ætla að hringja í kvöld.  En, þau eru ekki enn búin að hringja en kvöldið er ekki búið þannig.  Ég allavega læt ykkur vita.  ;)  Væri ekkert á móti því að fá smá pening en það eru svo sem ekki margir mánuðir eftir hérna í bænum, bara 2 og hálfur.  Þetta kemur allt í ljós.  ;)

Eftir skóla í dag þá fórum við Ingibjörg í Kringluna til að finna kjól á hana og fann hún dýrindis kjól á ekki neinn pening eða 1.000 kall:!:  Talandi um heppni, kjóllinn sem ég verð í kostar 10.000 kr. (keypti hann fyrir jólin):!: Iss.  Ég fór svo í La Senza og keypti mér sett því mig vantaði svartan haldara fyrir það sem ég hef framan á mér þannig ég skellti mér bara á eitt stykki naríur líka (kostuðu ekki neitt).  ;)  Fórum svo í Ice and a bucket og keyptum okkur fína eyrnarlokka.  Við ætlum svo aftur á morgun til að finna einhverja flotta skó á mig.  Mig vantar alveg fína skó við kjólinn og mig langar svo í svoleiðis.  En ef ég finn ekki neina þá verð ég bara í stígvélunum mínum og þau eru líka rosaflott við.  :D

Á laugardaginn er okkur Hödda svo boðið í 10 ára afmæli hjá Micro (fyrrverandi vinnustaður Hödda) og auðvitað látum við okkur ekki vanta þar.  Svo er stefnan tekin á Nasa til að fara á Wig Wam tónleika ef að maður kemst inn.  Maður er víst eitthvað svo barnalegur.  En það kemur allt í ljós, maður gerir þá eitthvað annað skemmtilegt í staðinn.  ;)  Ætla að dobbla Ingibjörgu með mér í eitthvað skemmtilegt.  :haha:

Segjum þetta gott.  :)

Nessa8)


» 9 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 9
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti